Í frelsisins nafni. (Sveipur) (Félagsleg harmsaga um mann, sem var árvakur)

I

Það var á Íslandi rétt eftir aldamótin 2000, að Sveipur var á götunni yfir harðasta vetrartímann. Það var napurt og næðingssamt. Frost og hríðar nörtuðu í hann og bitu, þar sem hann var yfirgefinn á götunni. Svona er þetta ekki á hinu guðsútvalda Íslandi, þar sem hvíslað er að þér, að þú sért einn hinna útvöldu. Okkar maður, Sveipur, hafði átt harða æsku og síður en svo skapað sína ógæfu sjálfur. Hann dvaldist í yfirgefnu pakkhúsi í Daníelsslipp við Reykjavíkurhöfn. Þar las hann um Mozart og ævintýrið um víkinginn Orm Rauða, auk þess sem hann gluggaði í Stjórnskipulag Íslands við týru frá vasaljósi. Stöku sinnum hýrðist hann uppi á hálfrifnu lofti JL-hússins í vesturbæ Reykjavíkur. Hann vildi ekki að athygli færi að beinast að sér við slippinn. Hann taldi að ef slíkt henti gæti hann verið hrakinn á burt sem rotta eða hússnæðislaus maður. Sveipur las sér til fróðleiks Sýnir og Vitranir eftir Erick Von Däniken og heimspekifyrirlestra Arnórs Hannibalssonar. Hann reikaði um Reykjavíkurborg og aflaði sér bjarga þar sem hana var að finna. Björgina sótti hann helst í port þar sem var að finna kistu, fulla af matvælum. Í raun mátti hann ekki fá það sem í kistunni var. Sveipur varð því að beita klókindum. Ekki mátti nokkur sjá. Hann þurfti að vera slunginn sem þjófur. Sveipur var ekki allur þar sem hann var seður. Hann gekk um með hugsjónir og hafði gáfur. En tímar og tækifæri voru honum ekki hagstæð. Hann sá ekkert færi til að láta drauma sína rætast. Erfitt var fyrir hann að hýrast á þessum stöðum og á strætum Reykjavíkurborgar. Hann hafði hugsjónir og drauma. En þegar hann leitaði aðstoðar yfirvalda eftir húsaskjóli, var komið fram við hann sem hin lægsta. Það var talað við hann sem hann væri óviti. Hann hugsaði sem svo að fólk væri svo grunnhyggið, að halda að einungis hugmyndasnauður maður gæti orðið hornreka í samfélaginu. En það var boðið upp á „aðstoð“ frá yfirvöldum og hann leitaði hennar. Ekki var að finna þá aðstoð sem hann þurfti. Ef hann dirfðist að vera ekki óskynsamari en ráðgjafinn, sem hjálpina átti að veita, eða hafa yfirsýn yfir hlut sinn og neitaði að láta koma fram við sig sem undirmálsmann, var talið að honum væri ekki viðbjargandi. Hann var látinn finna að slíkur maður væri ekki húsum hæfur og væri best settur áfram á götunni, eða jafnvel á geðveikrahæli. Fyrir einhverjum kann að vera svo illa komið að þeir séu ólæsir. Má vera að svo illa ástatt sé fyrir einstaka manni. Sveipur man þó ekki að hafa um sína tíð hitt slíkann mann.
Þegar svo var fyrir Sveipi komið að hann gat ekki annað fengið, en styrk upp á 58.000 krónur borgaði hann útistandandi skuldir samviskusamlega. Hann fékk sér ódýra steik og rauðvín með. Fór svo í laugarnar. Að því loknu átti hann eftir 22.000 krónur. Hann hugsaði mál sitt og hafnaði á Hjálpræðishernum. Þar fékk hann herbergi leigt á efstu hæð. Herbergið var lítið. Hann var feginn að komast í skjól. Hann átti ekki fyrir nema 12 dögum. Það varð víst svo að vera. Í herberginu, sem var um 7 fermetrar, var lítið ævagamalt rúm sem brakaði í, vaskur og gamalt náttborð. Hann fór vart út nema til morgunverðar. En það var ekki vel séð að hann gæddi sér á skyri og fengi sér brauð með síld á morgnana. Hann taldi morgunverðinn innifalinn í leigunni, en Hjálpræðishermenn vildu krefja hann um 300 krónur fyrir hvern morgunverð. Hann sagði þá trúlausa, þráaðist við og hélt til morgunverðar hvern morgun af illri nauðsyn. Hann borðaði, drakk kaffi og las blöðin undir stingandi augum hjálpræðishermanna. Að öðru leyti hélt hann sér inni á herbergi sínu. Segja má að á þessum 12 dögum hafi hann orðið „syndlaus“. Nema það að fá sér morgunverð hafi verið synd. Dæmi hver um það. Þetta gerði hann þá 12 morgna, sem hann fékk að vera þar. 12 dagar eru ekki lengi að líða og það kom fljótt að því að hann þurfti að fara á götuna aftur. Það gerði hann samanbitinn af tilhugsuninni um kalt strætið, en með æðruleysi. Hann ráfaði lítið eitt um götur, hugsandi hvað skyldi gera. Hann hafði fengið nokkur ljóð birt eftir sig í Morgunblaðinu. Hann hugsaði og sannfærði sig um að hann hefði ekki fengið réttláta borgun. Svo hann tók sig til, svangur og „syndlaus“og gekk að Morgunblaðshúsinu. Hann ætlaði sér að finna Gunnar Ísberg ritstjóra menningarblaðs Morgunblaðsins. Það er löng leið að ganga frá Hjálpræðishernum að Morgunblaðshúsinu. En það gerði hann. Þegar þangað var komið gekk hann inn í anddyrið og spurði til vegar í afgreiðslunni. Kona sem þar var sagði að ritstjóran væri að finna á 3 hæð. Hann tók lyftuna upp og settist þar í huggulegri biðstofu. Hann skoðaði sig vel um, stóð upp til að rétta við eina mynd sem var skökk. Hann steig um gólf og þá fóru atburðir, sem birst höfðu á síðum Morgunblaðsins þá 12 daga, sem hann hafði verið í húsaskjóli, að sækja að honum. Þeir vöktu upp hjá honum reiði, sem honum fannst réttlát.

Á biðstofunni líður og bíður þar til kemur kona sem sagðist heita Kristrún. Hún spyr hvort ekki megi bjóða Sveipi kaffi. Hann gæti ekki fengið að hitta ritstjórann alveg strax. Hann þáði boðið með þökkum. Kristrún bað hann að elta sig eftir gangi einum, sem hann gerði. Þegar inn af honum kom var þar lítið eldhús með „kaffisjálfsala“. Hún býður honum bolla af Expressó og súkkulaði. Kristrún segir að hann þurfi hvorki að greiða fyrir kaffið né súkkulaðið. Sveipur hafði verið á vergangi einhverja mánuði, fyrir utan þá 12 daga sem hann dvaldi á Hjálpræðishernum. Hann þakkaði fyrir sig. Hér fann hann ekki fyrir því að hann væri nokkuð minni maður. Kristrún spurði hvort hann gæti ekki bjargað sér sjálfur, hún þyrfti að sinna sínum verkum. Sveipur sagðist geta það og við það fór hún. Þvílíkt gæðafólk sem vinnur hér. Þetta á hún veröld til, það er nú meira! Kurteisi. Þetta fólk þarf ekki að koma hingað til að krefjast fjár fyrir nokkur ljóð. Hann stikaði eftir ganginum með bollann þar til hann kláraðist og fékk sér svo sæti. Hann dokaði enn við og ákvað að fá sér annan kaffibolla og aðeins meira súkkulaði. Hann gekk því aftur inn ganginn að „kaffisjálfsalanum“. Hann fékk sér tvöfaldan Expressó kláraði hann í hvelli og fékk sér svo annann og tók þrjú súkkulaði. Hann borðaði eitt með bollanum og fékk sér svo strax annað. Hann hafði þá fengið þrjá Expressó. Og þá fljótlega fór samviskan að segja til sín. Þrjú súkkulaði og þrír bollar! Það er of frekt. Það er best ég skili síðasta súkkulaðinu, sagði hann við sjálfan sig. Hann gerði það og kláraði bollann. Að því búnu fór hann aftur til sætis síns þar sem hann beið eftir ritstjóranum, Gunnari Ísberg. Sveipur svitnaði í lófum, því Expressó kaffið hafði verið sterkt. Hann fór að pirrast yfir sjálfum sér. „Því ætti ég að verðskulda greiðslu fyrir þessi ljóð?“. Slíkar voru hugrenningar hans þar til að kom Gunnar og bauð honum að ganga með sér inn á skrifstofuna. Þegar á skrifstofuna var komið tókust þeir í hendur og Gunnar Ísberg bauð hinum ógæfusama manni sæti og spurði hvert erindið væri.


II


Já, málið er, sagði Sveipur, að ég hef fengið birt nokkur ljóð og eitt sinn prentuðuð þið tvö hvort ofan í annað, svo ómögulegt var að greina hvað þarna væri á ferðinni. Það varð mér mikil skömm og ég heyrði glósur að ég væri að reyna finna upp einhvern nýjan stíl. Svo hef ég einungis fengið 2000 krónur fyrir hvert ljóð, sem er ekki einu sinni nóg fyrir nýrri skyrtu. Ég er hér kominn til að krefjast sanngjarnrar borgunar. Það kom örlítið á ritstjórann. Hann spurði hvað hann hefði í huga. Ég vil fá 150.000 krónur sagði Sveipur og framvegis 10.000 krónur fyrir hverja birtingu. Gunnar hefur líklegast talið að þarna hafi brjálaður maður verið á ferðinni og fór sér að öllu hægt. Hann passaði sig að styggja ekki manninn. Hann svaraði, að slíku væri ekki hægt að koma í kring á svipstundu. Hann þyrfti að bera þetta mál upp á ritstjórnarfundi. Hann skildi gera það á næsta fundi. Sveipur sá að þarna var lítil von um bjargræði, en krafðist þess að peningarnir yrðu komnir inn á reikning sinn um næstu mánaðamót. Sveipur stóð upp og rétti Gunnari miða með reikningsnúmeri og sagðist senda málið til lögfræðings ef hann fengi ekki greitt. Hver veit hugsaði Sveipur, sem hafði trú á sjálfan sig eins og oft á ögurstundu. Gunnar sagðist gera allt sem hann gæti. Hann stóð upp og rétti fram hönd sína. Sveipur tók í hönd hans og kvaddi. Hann var þá ekkert skáld og hafði engan rétt til að krefjast borgunar. Hann hafði ekki verið í skóla svo heitið geti, hafði ekki lokið skyldunámi. En hann taldi sig ekki þurfa mikla menntun til að geta hugsað rökrétt og eiga von. Hann vissi að það væri ekki glæta að hann fengi borgun. Hann labbaði aftur niður í miðbæ. Reikaði þar um stræti og fór aftur að hugsa um það sem hafði verið skrifað í blöðin þá 12 daga, sem hann hafði dvalið á Hjálpræðishernum. Hann hugsaði með sér að eitthvað yrði að gera til að forða Íslandi frá þeirri ógæfu sem yfir það væri að dynja. Og rólega gerðist það óumflýjanlega, hann fór að missa tökin. Hann byrjaði að tala upphátt við sjálfan sig um hrun lýðveldisins á meðan hann rölti um miðborgina. Á hann fór að renna æði og segja má að hann hafi tryllist þar sem hann fór stefnulaus um þar til hann fór inni í banka við Lækjargötu. Þar fór hann að hrópa, líkt og vitfirringurinn sem æpti í kirkjum og um torg fyrir nokkrum öldum í útlöndum og hrópaði Guð vera dauðan. Hann hélt því fram að verið væri að ræna þjóðina og hrun biði íslenska ríkisins. Hann sagði einkavæðinguna, sem stæði yfir, myndi grafa undan ríkinu og skilja það á endanum eftir valdlaust.


III


Við skulum nú fara örlítið aftur í tímann og heyra hvað Sveipur sagði: „Hvaða vitibornir menn svipta sjálfa sig völdum, þeir eru að hafa sig af fíflum? Hvenær ætlið þið að sjá það sem liggur ljóst fyrir? Við hröpum niður virðingar stiga þjóðanna. Eru allir blindir eða daufir? Ég spyr hvað á þjóðin eftir í sameiningu, sem hún getur bent á og sagt vera afrakstur dugnaðar síns? Ég er ekki hlynntur því að ríkið sé allsráðandi, allt í öllu. Það þarf ekki að gnæfa yfir sem eitthvert ógnarvald. En nú hefur verið farið yfir mörkin. Við getum alveg eins farið og selt landið sjálft. Þetta er eins og að vakna upp við vondan draum. Hvernig getur það verið þáttur í að tryggja sjálfstæði okkar að gefa valdið frá stjórnmálunum yfir til einkaaðila? Það getur vitanlega sýnt fram á tímabundinn hagnað ríkissjóðs að selja allt góssið. En hverjum gagnast gróðinn ef Ísland er ekki sjálfstætt ríki? Hvernig á að halda uppi almannaþjónustu?“ Sveipur sagði fleira um hrun og tímanna tákn. Hann var brjálaður. Hann æddi næst út úr bankanum og hélt í átt að Stjórnarráðinu. Fólk inni í bankanum hélt áfram með verk sín eins og ekkert hafi í skorist. Það var sem öllum væri sama. Hann hafði ekki nærst mikið. Aðeins skyr og brauðsneið með síld hjá Hjálpræðishernum, klukkan sex á morgnana í 12 daga og um morguninn drukkið þrjá tvöfalda expressó á ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins. Sveipur hóf upp raust sína, sem var orðin rám og dýrsleg: „Þið kjánar, sem allt þykjast geta og vita. Menntun ykkar er glapræði ykkar.
Fólk staldraði við og fór að fylgjast með Sveipi öskra á Stjórnarráðið. Hann sá það og hélt þá nokkurn veginn sömu ræðu er hann hélt í bankanum, en kallaði hina ráðandi stétt landráða- og óráðsmenn til skiptis. Það væri verið að koma eignum landsins undan. Og hann spurði: „Ef þetta eru föðurlandsvinir, hverjir eru þá óvinir þessa lands?“ Þeir eru að koma eignum, sem eru okkar, undan til einhverra, sem við vitum ekkert hverjir eru og varpa þar með ábyrgð ríkisins yfir á einkaaðila. Svo mun Evrópusambandið hirða landið þegar eignirnar hafa verið seldar. Sveipur hrópar: „Hvaða frelsi er falið í því fyrir Ísland?“ Hann heldur áfram ræðu sinni í algleymi um stund. Hann getur sér þess til að þeir séu blindaðir af girnd eftir gróða og beri í brjósti sér „sálarlausan“ kapítalisma. Sveipur sagðist engu hafa að tapa. Hann væri sjálflærður og sæktist ekki eftir umbun af neinni sort. En þannig menn, sagði hann, gætu orðið ósigrandi. Hann spurði hvar við héldum að Ísland yrði á lista yfir fjárveitingar meðal margmilljónaþjóða innan Evrópusambandsins. Þjóð, rétt yfir 300.000 íbúa. Haldið þið, að það verði gott að búa úti á landi ef byggja þarf brú? Eða gera göng, flugvöll eða nýjan veg? Við séum sem dropi í hafi og hafið gæti mulið björg en dropinn þyrfti að hola steininn í takt við aldirnar. Hann sá skilti er á stóð: Forsætisráðherra. Hleypur að því. Lemur í það og segir: „Því ekki ég?“.


IV

Því næst fór hann yfir Lækjargötuna, að rosknum mönnum sem voru að fylgjast með honum. Hann var kominn með brúna froðu í munnvikin eftir kaffið sem hann fékk á skrifstofu Morgunblaðsins. Hann var óður sem tryllt naut. Hann æpti að þeim að þeir ásamt hugsandi hluta þjóðarinar væru vitni að stærsta glæp Íslandsögunar síðustu 700 ár. Þeir gengju kúgaðir um líkt og Íslendingar undir valdi Haraldar Noregskonungs. Þeir ættu í raun að hypja sig aftur í moldarkofana, nútíminn væri ekki þeirra stund, þeir gætu ekki sýnt kjark til að standa upp gegn þeim sem misbjóða þeim. Hann sagði Íslendinga vera huglausa þjóð. Sveipur vildi stríð. Hann sagði Íslendinga ekki hafa þekkingu á stríði. Nú væri tilefni til. „En hvað gerið þið, þið gerið ekkert. Hann sagði þá hafa látið merja lífið úr landsbyggðinni fyrir framan augu sín án þess að aðhafast nokkuð annað en að tauta óánægðir með hökuna ofan í brjóst. „Þið eruð sem óvitar“, æpti hann, „sem hægt er að kaupa fyrir kanakaramellur“. „Þvílíkir endemis sakleysingjar“. Að þeim orðum sögðum tók Sveipur á rás yfir Lækjartorg og hélt í átt að Kristskirkju. Þar sem hann settist niður og talaði við Guð. Stuttu síðar kom lögreglan og tók hann höndum. Farið var með Sveip á Kleppsspítala. Hann var tuttugu og sex ára. Hafði verið hér og þar um sína tíð. Hann hafði lífsreynslu sem gæti fengið hvern mann til að blygðast sín, en hann trúði á annað tækifæri. Hann segir enn að ekki þurfi mikla menntun til að hugsa rökrétt. Hann er kominn útaf Kleppsspítala og hefur þá trú að búið sé að fella Ísland, að það endi í hinu föðurlausa Evrópusambandi. Í hans huga er ríkið orðið valdlaust eftir að hafa verið selt í „frelsisins“ nafni. Hann segist sjá þess teikn að ákveðið hafi verið að ná peningum þjóðarinnar úr landi með þeim rökum, að menn hugsi betur um eigið fé en annarra. Að hér sé svo lítið hagkerfi að vaxtarmöguleikar fyrir auð þjóðarinnar hafi verið takmarkaðir Ýmislegt gekk á í huga hans, til dæmis var hann Guð og konungur yfir Íslandi. En það var þó svo hér áður fyrr, að konungurinn var Guð lýðsins.
Endir

 

Sagan er skrifuð á Kirkjubraut á Akranesi og á Laugabraut. 

Sagan er ekki endanleg...


Fer ekki oft í Kirkju

Í Kirkju

Ég fer ekki oft í kirkju

En þegar ég fer þá hef ég ekkert slæmt í hyggju.

 

Langir leggir, gleið klof

eru mín trúar hof.

 


"Reality Asylum"

 

"Reality Asylum"

I am no feeble Christ, not me.
He hangs in glib delight upon his cross. Upon his cross.
Above my body. Lowly me.
Christ forgive, forgive. Holy he, he holy, he holy.
Shit he forgives. Forgive, forgive. I, I, Me, I.
I vomit for you, Jesu. Christi-Christus.
Puke upon your papal throne.
Wrapped you are in the bloody shroud of churlish suicide.
Wrapped I am in the bloody cloud of hellish genocide.
Petulant child.
I have suffered for you, where you have never known me.
I too must die. Will you be shadowed in the arrogance of my death?
Your valley truth? What lights pass those pious heights?
What passing bells for these in their trucks?
For you Lord, you are the flag-bearer of these nations,
one against the other, that die in the mud.
No piety, no deity. Is that your forgiveness?
Saint, martyr, goat, billy. Forgive?
Shit he forgives.
He hangs upon his cross in self-righteous judgment,
hangs in crucified delight, nailed to the extent of his vision.
His cross, his manhood, his violence, guilt, sin.
He would nail my body upon his cross,
as if I might have waited for him in the garden,
as if I might have perfumed his body, washed those bloody feet?
This woman that he seeks, suicide visionary, death reveller,
rape, rapist, grave-digger, earth-mover, life-fucker. Jesu.
You scooped the pits of Auschwitz.
The soil of Treblinka is rich in your guilt,
the sorrow of your tradition,
your stupid humility is the crown of thorn we all must wear.
For you? Ha. Master? Master of gore.
Enigma.
Stigma.
Stigmata.
Errata.
Eraser.
The cross is the mast of our oppression.
You fly their vain flag. You carry it.
Wear it on your back Lord. Your back.
Enola is your gaiety.
Suffer little children, suffer in that horror.
Hiro-horror, horror-hiro, hiro-shima, shima-hiro,
hiro-shima, hiro-shima, Hiroshima, Hiroshima.
The bodies are your delight.
The incandescent flame is the spirit of it.
They come to you Jesu, to you.
The nails are the only trinity.
Hold them in your corpsey gracelessness.
The image that I have had to suffer.
These nails at my temple.
The cross is the virgin body of womanhood that you defile.
In your guilt, you turn your back, nailed to that body.
Lamearse Jesus calls me sister! There are no words for my contempt!
Every woman is a cross in his filthy theology!
He turns his back on me in his fear.
His vain delight is the pain I bear.
Alone he hangs, his choice, his choice.
Alone, alone, his voice, his voice.
He shares nothing, this Christ; sterile, impotent, fuck-love prophet of death.
He is the ultimate pornography. He! He!
Hear us, Jesus!
You sigh alone in your cock fear!
You lie alone in your cunt fear!
You cry alone in your woman fear!
You die alone in your man fear!
Alone Jesu, alone, in your cock fear, cunt fear, woman fear, man fear.
Alone in you fear, alone in your fear, alone in your fear.
Your fear, your fear, your fear, your fear, your fear, your fear, your fear,
Warfare, warfare, warfare, warfare, warfare!

JESUS DIED FOR HIS OWN SINS. NOT MINE.


Á listahátíð

Ég skrifa þetta á sýningu listamannsins Dieter Roth-

Hann tók myndir af öllum húsum Reykjavíkur.

Metnaðarfullri en sérhver Íslendingur í vali sínu á list.

Að sjá skyggnurnar vekur upp notalega tilfinningu í bland við trega.

í myndum fortíðar er framtíð mín innan um horfin húsin.


Handritið

Ég lifi í þeirri blekkingu að ég stjórni.

Ég lifi í þeirri blekkingu að ég ráði.

 

Hver skrifar þessa sögu

Hver byggir þetta svið

Hver á handritið.


Tímarnir tveir (stolin saga af tímanum)

Sagan hefst í Egyptalandi fyrir skeið píramídanna í þorpi ættar einnar þar sem hið fullkomna samfélag hefur myndast. Allir hafa jafnan rétt og eru jafnir að manngildi. Allir geta gert allt en hver fer þá braut sem tíminn leggur. Í þorpi þessu býr tíminn. Hann hefur ekkert annað að starfa en það að vera tíminn. Hann gengur um gólf fram og til baka, klæddur í kufl. Tikk, takk. Tikk, takk.

Það má aldrei trufla tímann. Og enginn getur orðið tíminn nema tíminn og hann er eilífur. Hann er góður og lætur allt gerast. Hann klappar stundum stráksnáða á kollinn er hann sækir sér brauð og annan mat. Auðn ein mikil umlykir þorpið. Í henni eru vatnsból og litlar lendur fyrir sauði. Hirðingi úr þorpi tímans finnur dag einn í henni barn í reifum. Hver á þetta barn og hvaðan er það komið spyr hirðinginn sig. Það er óravegur í næsta þorp.

Hann tekur barnið með sér til þorpsins. Þorpsbúar ákveða að taka barnið að sér og ala það upp sem eitt af sínum. Í ljós kemur að barnið er bæði gáfað og hæfileikaríkt eins og önnur börn. Það byrjar næstum strax að babla á tungumáli þorpsbúa. Það verður draumur allra þeirra og tíminn er góður við það. Það getur orðið allt nema tíminn. Því er kennt að það megi aldrei trufla tímann.

Misseri líða og barnið lærir af þorpsbúum á lífið og dag einn er barnið spurt hvað það vilji vera þegar það er orðið stórt. Barnið segist vilja vera tíminn, það er svo hrifið af tímanum. Allir þorpsbúar telja það vera barnalegt og sætt. Sko, það vill verða tíminn segja allir og brosa. Einhver ár líða án þess að þorpsbúar hugsi frekar um það. En einn dag fer barnið til tímans og tekur í kuflinn hans og spyr hvort hann vilji ekki kenna sér hvernig á að vera tíminn.

Öll lögmál hristast og skjálfa og tíminn hrekkur við og hann horfir óttasleginn á barnið. Hann er svo viðkvæmur. Nokkrir þorpsbúar hlaupa til og sækja barnið, taka það í burtu frá tímanum. Allir aðrir eru skelfdir eins og tíminn. Hvað var barnið að gera? Allir telja að þetta sé í fyrsta skipti svo nokkur muni eftir, að komið sé geðveikt barn í heiminn. Þorpsbúar þeir sem tala við barnið segja því að aldrei megi það trufla tímann, ALDREI.

Allt hefur sinn gang og stundir líða en svar og framkoma barnsins hefur sáð fræi í hjörtu þorpsbúa og dag einn ákveða þeir að spyrja barnið aftur hvað það vilji vera þegar það er orðið stórt. Annars hefðu þeir látið tímann um sitt. Aftur segist barnið vilja vera tíminn, þegar það er orðið stórt. Það varð uppnám í þorpinu. Barnið getur ekki, má ekki vera tíminn. Hvernig á heimurinn að geta virkað almennilega ef í honum eru tveir tímar? Hvor yrði réttur? Yrðu þeir eins? Á hvorum ætti að taka mark? Öll lögmál heimsins myndu hrynja ef í honum yrðu tveir tímar! Það er aðeins til einn alheims tími.

Svo að þorpsbúar taka upp á því að senda barnið í burtu til næsta þorps. Þar býr höfðingi og börn geta verið höfðingjar þegar þau eru orðin stór. Allir þar eru góðir við barnið. En höfðinginn er óöruggur um sig vegna návistar barnsins sem er að verða vel stálpað. En barnið vill ekki vera höfðingi. Og einn dag er það horfið. Og enginn veit hvert það fór. Þorpsbúar leituðu að barninu vítt og breitt um auðnina en fundu það ekki.

Barnið sem nú var að verða unglingur gékk inn í eyðimörkina. Þar spurði það sjálft sig: Get ég orðið tíminn? Koma aldrei nýir tímar? Ef ég er tíminn þá er ég nýi tíminn og þá hlýt ég að vera nútíminn, hugsaði hann. En hvað veit ég um það hvernig á að vera tíminn, sagði hann upphátt við sjálfan sig? Engin hefur kennt mér neitt. Þá heyrir hann rödd innra með sér sem segir: Ef þú er tíminn þá þarf ekki að kenna þér neitt því þú ert það sem þú ert, þú ert upphaf og endir þíns sjálfs, farðu aftur í þorp gamla tímans og segðu þig vera hinn nýja tíma, sagði röddin.

Það hugsar sig um og reikar um eyðimörkina eitt til tvö misseri. En svo einn dag birtist það aftur í þorpi tímans og er orðið að unglingi og það segist vera nýi tíminn. Ég er nútíminn, segir það. Skelfing grípur um sig í þorpinu. Heimurinn ruglast, jörðin hristist, fossar renna upp í móti og gamli tíminn fipast, lögmálin hrynja en nýi tíminn grípur þau og heldur þeim uppi.

Hvað gera þorpsbúar nú? Lögmálin leika í höndum hans. Þau elska gamla tímann og geta ekki sætt sig við hinn nýja. Hann getur ekki verið góður, eða hvað? Við sem höfum haft sama tímann frá upphafi og við kunnum ekki á nýjan tíma. Þau huga að gamla tímanum og sjá að hann er orðinn veikur. Margir þorpsbúar gefa ekki upp vonina á þann gamla, af því að þeir trúa á hann. Og því taka sumir þorpsbúar upp á því að flytja burt úr þorpinu og skilja nýja tímann eftir í því að þeir taka gamla tímann með sér og hjúkra honum og hann gefur sjálfur ekki upp alla von. Og allir vita að allt er hægt með tíma og þolinmæði.

Þeir sem fóru, taka því upp á því að hugsa sig aftur til gamla tímans og yfirgefa heim nýja tímans hægt og hægt þar til gamli tíminn ríkir aftur hjá þeim. En þeir sem eftir urðu í þorpinu lærðu smátt og smátt á nýja tímann. Honum fylgdi engin sérstök ógæfa, en margar nýjungar, siðir og menning. Brátt fór öllum að þykja jafnvænt um nýja tímann og svo hurfu þeir, sem mundu þann gamla, hægt og rólega. En bækur er ritaðar voru um gamla tímann var það eina sem minnti á hann. En sá nýi hafði margt að hugsa um eins og t.d. það, hvenær kemur næsti tími. Um þetta hugsaði hann er hann gekk um gólf í húsi sínu. Tikk takk, tikk takk. Og gengur enn.


Undir eilífðar sól

 

Drottning minna dimmu verka
þú gaf mér eitraðan koss
undir sól horfinnar veraldar.
Ég nærðist af eitri þínu
og dvaldi í myrkri heimsins.
Þegar mér snerist hugur var það orðið of seint.
Ég brann, ég brann og brenn.
Veröldin brennur af eitri þínu.

Drottning minna dimmu verka ég kalla á þig.
Ég losna ekki undan álögum þínum.
Kastalar heimsins fullir af blóði.
Konungarnir drepnir fyrir frelsi þjónsins.
Horfin heimur sem var.
Dýrkeypt er þitt eitur.
Frelsi mitt var þessu verði keypt-
undir eilífðarsól horfinnar veraldar.


Leiðin úr undirdjúpunum

Leiðin til að skilja þessi ljóð sem eru á youtube.com er að horfa á höfundinn í þessu samhengi: Að skáldið er lokað inn á öryggisgeðdeild eftir að hafa afplánað 3 ára fangelsi á Litla Hrauni fyrir að hafa kveikt í bústað á Skafti Kleppsspítala þar sem hann bjó. Hann er sjálfmenntaður öryrki orðin þreyttur á sífelldri einangrun og vill varpaljósi á stöðu sína. Honum finnst hann svikinn. Við ætlun ekkert að fara nánar út í sögu hans nema að skáldið hlaut ekki þá menntun sem er skilyrt af lögum um skólaskyldu.

 

Ljóðið FÖSTUDAGSKVÖLD  ber merki um kvenfyrirlitningu og skáldið er meðvitað um það enda vill það vekja upp viðbrögð og er sama um andúð.

Skáldið naut kvenhylli og var götustrákur í Reykjavík, komið úr afskekktri sveit í strandasýslu. 

 

Höfundur er ekki menntaður listamaður en hann kallar þessi myndbönd gjörning, „gjörning sem er verri en sjálfsvíg“. Listamenn hafa sett sjálfsvíg á svið og hafa leitt áhorfendur um verksummerki. Youtube myndböndin eru sjálfsvíg og höfundurinn verður að lifa þau af.

 

Kunningjar skáldsins sem ekki gera sér grein fyrir þýðingu verksins eða hugarheim skáldsinns horfa til hans sem glataðs manns. Enda gjörningurinn úr takt við allt sem þekkt er og er án fordæmis. Þá má við það bæta að skáldinu finnst það engu hafa tapað, aðeins grætt þar sem myndbandið er með yfir 600 áhorf.

                                        

Þetta listaverk er tilraun til að ljúka ákveðnu lífsmunstri og til að upplýsa um stöðu skáldsins. Hér í lokin vill skáldið segja frá þeirri lífsreynslu að í eitt skipti var hann að njóta sín með fólki sem hann kann vel við en var tekin og svæfður af þeim sem hann treysti. Skáldið vill benda á að hann var svikinn af vinum sínum og svæfði heilt partí.

 

 

 


Veruleikatékk

föstudagur, 17. júní 2016

Kleppsgörðum

105 Reykjavík

 Þessu erindi svaraði landspítalinn aldrei.

 

 

Umsókn um sjónvarp

 

 

 

Ég skrifa þetta bréf vegna þess að ég vil sækja um að fá að hafa sjónvarp. Það er fimmtíu ára afmæli sjónvarpsins og mikið um góða dagskrágerð. Eflaust mikið um upprifjun frá liðnum áratugum. Nú er evrópumeistarakeppni í fótbolta og ég ómögulega get fengið mig til að hafa á henni áhuga. Ég læt fylgja með grein þar sem ég skrifa um áhrif sjónvarps. Þannig að það fari ekki á milli mála að ég skilji áhrif sjónvarps á líf mitt. Ég vil segja að ég sé ekki sakleisingi sem auðvelt er að hafa áhrif á. Að ég er meðvitaður um áhrif sjónvarps á mitt líf. Ég vil að það verði fjallað um þessa beiðni af fullri alvöru.

 

Kveðja

Örn Úlriksson

Sími:699-4383

Veffang:ornulriks@hotmail.com


Siðskerðing á Kleppi

Í gær var ég í viðtali hjá sigurði páli pálssyni, ingibjörgu og guðmundu sævari sævarssyni. Ég spurði guðmund sævar af hverju hann gæfi mér ekki á kjaftinn Hann svaraði: Það myndi sjást á þér.

 

Það var verið að skamma mig fyrir að hafa ætlað að kveikja mér í sígaréttu í kaþólsku kirkjuni.

 

Ég veit að það er ekki til réttlæti fyrir svoa illa menntaða menn. Það væri betra að vera í sellu á Litla Hrauni sekur um morð.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband