Leiðin úr undirdjúpunum

Leiðin til að skilja þessi ljóð sem eru á youtube.com er að horfa á höfundinn í þessu samhengi: Að skáldið er inn á öryggisgeðdeild eftir að hafa afplánað 3 ára fangelsi á Litla Hrauni fyrir að hafa kveikt í bústað á Skafti Kleppsspítala þar sem hann bjó. Hann er ekki vistaður samkvæmt úrskurði dómara. Hann er sjálfmenntaður öryrki orðin þreyttur á sífelldri einangrun og vill varpaljósi á stöðu sína. Honum finnst hann svikinn. Við ætlun ekkert að fara nánar út í sögu hans nema að skáldið hlaut ekki þá menntun sem er skilyrt af lögum um skólaskyldu.

 

Ljóðið FÖSTUDAGSKVÖLD ber merki um kvenfyrirlitningu og skáldið er meðvitað um það enda vill það vekja upp viðbrögð og er sama um andúð.

Skáldið naut kvenhylli og var götustrákur í Reykjavík, komið úr afskekktri sveit í strandasýslu.

 

Höfundur er ekki menntaður listamaður en hann kallar þessi myndbönd gjörning, „gjörning sem er verri en sjálfsvíg“. Listamenn hafa sett sjálfsvíg á svið og hafa leitt áhorfendur um verksummerki. Youtube myndböndin eru sjálfsvíg og höfundurinn verður að lifa þau af.

 

Kunningjar skáldsins sem ekki gera sér grein fyrir þýðingu verksins eða hugarheim skáldsinns horfa til hans sem glataðs manns. Enda gjörningurinn úr takt við allt sem þekkt er og er án fordæmis. Þá má við það bæta að skáldinu finnst það engu hafa tapað, aðeins grætt þar sem myndbandið er með yfir 600 áhorf.

 

Þetta listaverk er tilraun til að ljúka ákveðnu lífsmunstri og til að upplýsa um stöðu skáldsins. Hér í lokin vill skáldið segja frá þeirri lífsreynslu að í eitt skipti var hann að njóta sín með fólki sem hann kann vel við en var tekin og svæfður af þeim sem hann treysti. Skáldið vill benda á að hann var svikinn af vinum sínum og svæfði heilt partí.


Meskalín


Bloggfærslur 11. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband