Færsluflokkur: Ljóð
Föstudagur, 10. febrúar 2017
Einkavæðing
Þessi grein er skrifuð fyrir mörgum árum.
Árin1220-1267 voru ekki góð fyrir landið okkar Ísland, því þá töpuðum við sjálfstæði okkar vegna svika landráðamanna í hendur Noregskonungs sem þá var Haraldur hárfagri. Stóð það fötlunarástand yfir í 656 ár. Fyrir þau ár var við lýði hér höfðingjaveldi (aristocracy). Skilgreining hinna gömlu heimspekinga er lifðu í Grikklandi hinu forna, Plató d. 347 f.Kr. og Aristóteles d. 322 f.Kr. á höfðingjaveldi er eftirfarandi: Aristocracy (höfðingjaveldi) er það stjórnform, þar sem fámennur hópur bestu manna fer með ríkisvaldið í þágu allrar þjóðarinnar. En þessir grísku heimspekingar hafa einnig látið frá sér þau skilaboð að mikil hætta væri samfara stjórnskipan þessari þróun yfir í klíkuveldi (oligarchy). Klíkuveldi skapast er fámennur hópur manna (eignamanna) stjórnar í engra annarra þágu nema þeirra sjálfra.
Aristóteles segir: Klíkuveldi gætir hagsmuna hinna ríku. Er ég að tala um landnámsárin eða er ég að tala um nútímann? Líklega á þetta við um alla tíma. Sagan er að spila sjálfa sig aftur og aftur, það eina sem breytist er að það er ekki verið að nema land heldur er verið að nema viðskiptasambönd, fyrirtæki og fólk.
Smá punktur.
Í Rússlandi í valdatíð Borisar Jeltsín reið yfir einkavæðingarbylgja sem endaði á þann veg að fámennur hópur manna hvarf á brott með milljarða dollara sem tilheyrðu Rússneskum ríkissjóði. Boris Jeltsín og hans menn gáfu beinlínis ríkisfyrirtæki í nafni einkavæðingar vandamönnum og skoðanabræðrum.
-Mín tilfinning-
Það er sem ég sé staddur í Rússlandi, en er ég horfi í kringum mig sé ég fögur fjöll, sem í sumarblíðu skarta guðdómlega fallegri flauelsbreiðu sem náttúran hefur breitt yfir þau, önnur eru nakin, grýtt og gróf eins og hin eina sanna fjallkona. Sólin skín, næstum allan sólarhringinn. Fólk sem ég hitti talar og ég skil það, en það hjalar innihalds- og merkingarlaust þvaður sem staðfestir að ég sé hvergi annarstaðar staddur en á Íslandi.
Einkavæðingin ríður nú yfir íslenskt efnahagslíf. Síðast Síminn, er rekinn var með 750 milljón króna hagnaði árið 2000. En eigið fé Símans var samtals 28.125.344.000 kr. árið 2000. Og er það fé nú komið í hendur einkaaðila.
Stefnt er á, að það verði Landsvirkjun næst ríkisfyrirtækja, sem plokka skuli frá landinu í þágu hagsmuna fárra manna, sem reyndar skilaði engum hagnaði fyrir árið 2000 því að rekstrarhalli var upp á 1.366.119.190 kr. En árið 1999 dekkar þann halla upp því þá var hagnaður upp á 1.924.430.462 kr. En eigið fé og skuldir þess fyrirtækis samanlagt er 111.596.453.567 kr. árið 2000. Við erum brjáluð ef við gefum þetta frá okkur líka og látum Davíð umbreytast yfir í Boris.
Með því erum við að senda Ísland aftur á það svið er það var ekki fjárráða. En Ísland fékk fjárræði frá Dönum 1874, er Alþingi fékk lögjafarvald í hendur frá konungi Dana.
Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 22. maí 2000 talar Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins um fyrirbæri er hann nefnir fé án hirðis. Ekki eru allir sem átta sig á hvað þar er átt við, því skal ég útlista það sem best ég get: Hann meinar fé ríkisfyrirtækja sem bundið er hinum íslenska ríkissjóði. Nota á fé þetta í menningar- og umhverfismál, þannig að það skili sér til baka í gegnum hagkerfið aftur inn í ríkissjóð. þannig er það á hreyfingu, sem nauðsynlegt er fyrir sjóðinn og er hollt fyrir land og þjóð. Fé þetta nær að vaxa í hagkerfinu en það eru takmörk fyrir því hver vöxtur þess er, vegna þess hve það er lítið. Vilji þeirra Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna er stýra þessu landi er að setja hirði yfir það og þá sína hirði.
Fari fé þetta frá ríkissjóði er ríkið komið ovaní holu og hvað eiga menn að gera þegar þeir eru að moka sig ovaní holu? Nú þeir eiga að hætta að moka og það er betra að hætta þegar enn er hægt að komast upp. Orðrétt stóð og stendur skifað í Mogganum: Hvatti Pétur til þess að bretta upp ermarnar í einkavæðingunni og selja næst Landsvirkjun. Það þarf engan snilling til að sjá, að þegar búið er að einkavæða helstu fyrirtæki landsins munu tekjur þess rýrna heldur betur er til framtíðar er litið, og aðeins er um augnabliks tekjuaukningu að ræða, er sýnt verður fram á hana. Því er einkavæðingin svipuð því að pissa í skóna sína, sem sé skammgóður vermir, og hvað gerist þegar vökvinn í skónum kólnar? Svar: Krónan fellur, sjálfstæðið farið, ESB og evran upp.
Við rennum saman við stórfljótið, þar sem lækjarspræna hefur ekkert að segja og enginn mun huga að bæjarlæknum, því að þegar stjórfljót hefur fundið sér farveg á hlaðinu. gleymist sá gamli góði fljótt.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. október 2016
Áhrif Sjónvarps
Ertu geðveikur! Þannig er spurt þegar maður segir að sjónvarpið sé að senda sér skilaboð. Slík viðbrögð eru jafnvel ekki viðeigandi. Hvers vegana? Vegna þess að maður sem telur annan mann geðveikan fyrir að halda að sjónvarpið sé að senda honum skilaboð, gæti verið geðveikari en sá sem hann segir geðveikan.Menn eru undir áhrifum sjónvarps og hugmyndir þeirra blandast af þeim hugmyndum sem er sjónvarpað. Það er þannig að stór hluti manna í hinum vestrænaheimi er undir sefjunaráhrifum. Þó er það almennt ekki viðurkennt að sjónvarpið hafi þessi áhrif vegna þess að útsendingum sjónvarpsins er stjórnað af yfirvöldum og ró almennings má ekki raska. Á hverju ári eru gerðar þúsundir kvikmynda og kvikmyndaframleiðsla CIA er voldug. Við erum föst í spíral á leið niður án þess að gera okkur grein fyrir því. Það er hægara sagt en gert að leiðrétta þessa villu og vart mögulegt. Ég hef minningar um að hafa verið heltekinn af einhverjum bíómyndum sem gjörsamlega umturnuðu mér. Ég horfi á vídeó og verð fyrir áhrifum því hugur minn vill það. Þessi vitfirring er samt ekki viðurkennd. Þó verða árif sjónvarpsins á hugmyndir manna meiri og meiri. Líf manna er meira og meira sýnt í sjónvarpinu og fólk ber sig saman við fólkið á skjánum. Það er fátt sem kostar minni fyrirhöfn en að kveikja á sjónvarpinu og horfa á áhrifamikla kvikmynd.
Fyrir nokkru hætti ég að horfa á sjónvarp í tvö ár og taldi mig enduruppgötva raunveruleikann. Ég sá að hann var enn myrkur og dulúðarfullur. Við eigum ekki viðreisnar von gegn myrkrinu sem umlykur okkur. Heimurinn hefur ekkert breyst og ef áhrifavaldar eins og sjónvarp myndu fara, yrðum við kynnast myrkrinu. Ímyndunarafl okkar myndi þá strax byrja að túlka heiminn, tröll og huldufólk myndu lifna við. Því eigum við vart annan kost en að flýja myrkrið og leita einhvers konar afþreyingar. Menn verða fyrir áhrifum og þau geta komið aftan að manni. Áður en maður veit er maður horfinn manni sínum og kominn með nýjar hugmyndir. Er það betra en að lifa í myrkri heimsins? Menn virðast hafa lagt heiminn undir fyrir afþreyingu og eflaust hafa vísindamenn rannsakað hver áhrif sjónvarps séu. Þeim niðurstöðum verður ekki sjónvarpað. Frá sjónvarpinu drögum lærdóm af fræðsluefni og upplýsingar sem annars væru okkur ókunnar, verða ljósar. Við vitum betur hvernig heimurinn er. Við fáum innsýn í líf annara þjóða. Fréttastöðvar senda fréttir af atburðum augnabliki eftir að þeir gerast. Sýnt er í beinni útsendingu hverning áhrifamiklir menn eru hraktir úr starfi. Heimurinn verður óttasleginn vegna náttúruhamfara sem eiga sér stað hinumegin á hnettinum. Fólk binst böndum vegna deilna þjóða á milli. Sjónvarpið býr til ímyndir sem eru settar fram til að vinna hylli eða rýra traust. Við lifum á tímum frjálsar fjölmiðlunar. Ábyrgð þáttastjórnenda er komin út fyrir þann ramma sem þeim er ætlað, en það er í lagi vegna þess að allt vinnur þetta hylli almennings. Almenningur vill láta trufla sig, hann vill verða fyrir áhrifum. Yfirvöld eru knúin til aðgerða vegna sjónvarpsfrétta. Heimurinn vitfirrist og hvað gerir vitfirrtur heimur. Hver er leiðinn út úr þessu. Framleiða fleiri kvikmyndir, opinbera fleiri leyndarmál. Viljum við hverfa lengra ofan í hyldýpið og selja sálu okkar fyrir 55 háskerpu sjónvarp og sjá atburði í sem bestri upplausn og bestu tóngæðum í gegnum heimabíómagnara og 5.1 hljóðkerfi?
Ljóð | Breytt 6.12.2016 kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 12. september 2016
FRELSI MYRTRAR SAMVISKU
Hvergi ró myrtrar samvisku
Sprauturnar hlýja ekki sálini
þær eru fullar af geðlyfjum
Hvergi ró myrtrar samvisku
Læknirinn þjarmar að lífinu
krefst af þér viðtals í hverri viku
Hvergi ró myrtrar samvisku
Ég hrópa en fæ ekki svar
Læknirinn miskunarlaust herðir tökin
hvergi ró myrtrar samvisku
Hlýjar minningar hótels
Griðarstaður frá götu og ofbeldi
Hvergi ró myrtrar samvisku
Frelsandi sprauta með beiskum vökva
Frelsandi flaska með römmu Viskí
Frelsi myrtrar samvisku
Ljóð | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 19. mars 2011
Tíminn
Við virki drottins er mín vera.
Ég hef dáið frá veruleika heimsins-
og hef kosið að hvíla við frumsköpunarlind.
Þar svala ég þorsta mínum
og hlýði á rödd þagnarinnar.
Þar í upphafi, áður en lífssköpunarinnarorð
var mælt í fyrsta sinn, var ég og-
hlýddi á hljóðan geiminn, löngu fyrir sköpun hans.
Ljóð | Breytt 11.8.2016 kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)