Mánudagur, 12. september 2016
FRELSI MYRTRAR SAMVISKU
Hvergi ró myrtrar samvisku
Sprauturnar hlýja ekki sálini
þær eru fullar af geðlyfjum
Hvergi ró myrtrar samvisku
Læknirinn þjarmar að lífinu
krefst af þér viðtals í hverri viku
Hvergi ró myrtrar samvisku
Ég hrópa en fæ ekki svar
Læknirinn miskunarlaust herðir tökin
hvergi ró myrtrar samvisku
Hlýjar minningar hótels
Griðarstaður frá götu og ofbeldi
Hvergi ró myrtrar samvisku
Frelsandi sprauta með beiskum vökva
Frelsandi flaska með römmu Viskí
Frelsi myrtrar samvisku
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkar: Löggæsla, Menning og listir, Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 16:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.