Bréf frá Hvíta Húsinu undirritað af fyrrum forseta Ameríku Barack Obama.

Ég sendi Hvíta Húsinu bloggið mitt og eitt ljóð. Ljóðið hét JÖKLA ÁRÁS. Það ljóð var tileinkað Donald J Trump. Ég fékk svar bréf undirritað af Barack Obama.

Ég leyfi mér að vitna til þess bréfs með því að afrita það hingað á www.veruleikatekk.blog.is með von um að það hafi áhrif á þau mál sem ég er að reka til að fá að njóta sömu réttinda og aðrir sjálfráða Íslenskir ríkisborgarar.

 

„Thank you for writing.  Serving as President has been the greatest privilege of my life, and messages like yours have motivated and informed me along the way.  We should be proud of what we have accomplished together.

Through trial and triumph, America has always overcome challenges and emerged stronger because we’ve come together as one people.  And our progress depends on folks like you who speak out on issues that matter to them.  I look forward to standing alongside you as a private citizen, working to ensure our Nation lives up to our highest ideals as a beacon of hope and opportunity.“

Sincerely,

Barack Obama

 

Ég er fullur þakklætis að fá þau skilaboð að Barack Obama vilji standa mér jafn sem almennur borgari.


Velferðarsvið Akraneskaupstaðar.

Reykjavík,

Kleppsspítala

  1. apríl 2016.

 

Ég undirritaður skrifa þetta bréf til Velferðarsviðs Akraneskaupstaðar  til að vekja athygli á því að ég er mótfallinn þeirri meðferð sem ég sæti. Ég er ekki tilbúinn að gefa afslátt á borgaralegum réttindum mínum og vera vistaður á sambýli. Móðir mín Kristín G. Jónsdóttir vinnur fyrir velferðarsvið Akraneskaupstaðar og hefur stuðning systra sinna og vinnufélaga, þar liggur vandinn, Kristín segir mig vera heimskan. Ég er beittur hörðum þvingunum og er svikinn. Kristín beitir óþverrabrögðum og illu umtali. Kristín á það til að tala um kæsni og ég ætla að nota það orð hér, hún er kæsin. Kristín er óhæf til þess að eiga mannleg samskipti og í mínu tilfelli beitir hún hörku. Hún hefur búið sér til skýringar á veikindum mínum sem eru fjarri öllum sannleika. Kristín vill ekki eiga við mig mannleg samskipti, vegna þess að þá yrðu hennar skýringar að engu, lygarnar yrðu uppvísar.  Kristín hefur engu áorkað nema að drekka vel á Þorrablótum.

                                                                                                                        

Ég á mér kvörtunarefni að vera lokaður inni á Öryggis- og Réttargæsludeild. Að einu úrræðin sem mér eru boðin séu sambýli. Ég get ekki hugsað mér verri örlög en þau að vera á sambýli. Ég vil að það sé virt að ég kaus að vera sjálfviljugur í meðferð á Kleppsspítala. Ég vil fá það viðurkennt að brotið er gegn dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá árinu 2004. En Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu um sjálfræðissviptingu. Það lá því ekki fyrir heimild dómsmálaráðuneytis um þvingaða lyfjameðferð en ég var þvingaður til að undirganghast hana.  Ég er ekki skyldugur að undirgangast forðasprautur og þær er því brot gegn 1. mg. 28. gr. lögræðislaga.

 

Ég átti að losna úr fangelsi í desember 2014 en var sviptur sjálfræði áður en afplánun lauk. Ég fór þá á Réttargeðdeild Kleppsspítala, ég dvel nú á Öryggisgeðdeild. Það verður að taka mið af því að ég hef ekki verið dæmdur á Réttargeðdeild fyrir glæp og ég er sakhæfur. Mér finnst þetta er ekki rétta leiðin til að koma mér fyrir. Ég hef velt mörgu fyrir mér í þessu máli. „Ég hef t.d hugsað hvort það myndi ekki borga sig fyrir velferðarsvið Akranes kaupstaðar að mjaðmagrindar brjóta mig svo ég sé meðfærilegri, Það væri hægt að hafa mig á sambýlinu við Vesturgötu á Akranesi þar sem Kristín vinnur“.  Ég vil benda á að ég upplifi ofbeldi að vera þvingaður til að undirgangast þá meðferð sem ég er í. Akranes kaupstaður getur ekki gert þá kröfu að ég sé sjálfræðissviptur og hvað þá að ég sé vistaður á sambýli, það er einfaldlega fráleit krafa.

 

Ég vil njóta friðhelgis einkalífs og vil að borin sé virðing fyrir frelsi mínu, að ég sé ekki undir stöðugu eftirliti eins og dæmdur nauðgari. Ég vil frelsi til athafna eins og þeirra að fá mér rauðvín og bjór, ég vil geta farið á veitingastað og pantað mér það sem er í boði. Ég hef ekki verið úrskurðaður í farbann en er ekki heimilt að yfirgefa landið. Ég fæ ekki greiddar örorkubætur, þar sem ég hef verið lengur en 6 mánuði á sjúkrahúsi. Ég þarf því að sætta mig við vasapeninga sem eru 58.000 KR á mánuði. Þegar ég fór á örorkubætur árið 2002 var ég svikin um eingreiðslu frá Tryggingarstofnun. Það er upphæð sem nemur allt að 2 ára örorkubætum. Það var í höndum Sigurðar Pál Pálssonar að sækja um þá greiðslu fyrir mig. Ég var svikin en í staðin var skrifað upp á bankalán fyrir mig hjá Landsbankanum á Akranesi. Það var stefna móður minnar sem réði, ekki mín velferð.

 

Ég er að reyna fá meðferðaraðila mína til að skilja mig en vinn enga sigra. Ég var beittur ofbeldi. Ég er kominn úr sveit, Árnes í Árneshreppi í Strandasýslu var mitt heimili, Árnes er prestsetur. Ég lék mér stundum í kirkjugarðinum. Eitt kvöld áminnti Kristín mig og bannaði mér að leika mér þar. Ég ætlaði að hlusta á hana og hliða en var engdur í eltingaleik, auðvitað var farið í kirkjugarðinn, það var kvöld og myrkur. Ég ærslaðist og hló af ánægju en þegar ég var að klára hringinn um kirkjugarðinn hleyp ég á streingda línu. Línan fór upp í munninn á mér og skarst upp í munnvikin, svo mér brá og ég meiddi mig. Ég fór að gráta og hljóp til Kristínar, ég sagði henni frá að ég hafði meitt mig, hún skammaðist og sagðist vera búinn að banna mér að hlaupa um kirkjugarðinn.  Kristín veitti mér ærlega ráðningu sem hefur haft sín áhrif allt til þessa dags. Hún barði mig og meiddi. „Móðir mín kýldi mig í magann“. Það er mín minning að ég lifði sól mína sortna, þarna hafði Kristín neglt mig, ég lék mér ekki aftur í kirkjugarðinum.

 

Velferðarsvið Akranes kaupstaðar ætti að líta til þess að Kristín beitti börn ofbeldi.

Að hún er drykkjusjúkur alkahólisti og að allt þetta mál er gegnsýrt af alkahólisma. Hana skortir tilfinningar til að geta verið móðir og hún á það til að kúga og beita ofbeldi. Hún vinnur með fjölfötluðum og þarf ekki að taka tillit til skoðana þeirra, það fólk getur ekki tjáð sig. Ég hef grun um að ég sé skráður þroskaheftur á skattaframtali Kristínar, að hún fái greitt með mér. Það má vera að ég sé að fara með rangt mál. En ég hef t. d. ekki fengið endurgreitt frá skattinum, Kristín sá um skattaframtal mitt, í fyrra átti ég að fá 20.000 kr. Nú segir félagsráðgjafi að ég eigi að fá 120.000 kr. endurgreitt. Ég hafði samband við sýslumanninn  á Akranesi og breytti reikningsnúmeri skattaframtalsins svo ég fái greitt þá fjármuni en það gerði ekkert gagn. Kristín hefur alla tíð tekið allt fé sem ég á lögum samkvæmt. Ég óttast jafnvel hefndaraðgerða af hennar hálfu, vegna þess að hún lítur á mína peninga sem sína eign.

 

Þegar faðir minn Úlrik Ólason féll frá árið 2008 fékk ég greidda eina milljón frá ekkju hans Margréti Halldórsdóttur. Mig grunar að þannig sé komið fram við greindarskerta, að þeim sé greidd ein milljón slett. Ég hefði viljað ganga jafn bræðrum mínum, Andra og Halldór Óla Úlrikssonum, til uppgjörs úr dánarbúi Úlriks. Ef Kristín hefur fengið greitt úr dánarbúi Úlriks er það vegna þess að hún hefur mig rangt skráðan á skattaframtali. Ég myndi vilja gera kröfu í dánarbú Úlriks Ólasonar og fá því skipt, en ekkja hans Margrét situr í óskiptu búi. Einnig vil ég gera þá kröfu að ég verði lögerfingi afa míns Óla E. Björnssonar, sem féll frá árið 2013. Þar sem Úlrik er fallinn frá vil ég ganga jafn Andra og Halldór Óla til þeirra skipta. Amma mín Ingigerður Dóra Þorkelsdóttir ekkja Óla situr í óskiptu búi. Þá vil ég gera kröfu í íbúð þeirra hjóna að Laugarbraut 26 Akranesi. Ég glími við það að vera með skert borgaralegréttindi, að ég get ekki gert kröfu um minn rétt. Ingi Tryggvason fyrrum sjálfræðismaður minn segir að það sé orðið of seint, þegar kemur til þess að ég fái minn hlut réttan hefur hann það svar að það sé orðið of seint. Óli E Björnsson afi minn var skrifstofustjóri hjá Hb&co, sem nú hefur sameinast Granda, í 60 ár. Ég vil fá allt það sem ég hef rétt á.

 

Ég var skjólstæðingur Sólveigar Reynisdóttur félagsráðgjafa á Akranesi þegar ég var barn og unglingur. Ég var oft vistaður á Efstasundi 86. Sólveig ætlaði eitt skipti á fundi að fá Kristínu til að horfast í augu við að hún væri vandamálið.  Fundinum lauk með því að ég varði Kristínu. Ég átti engan að og var hræddur um hvað myndi taka við ef Kristín yrði fundin sek um ofbeldi. Fjölskylda föður míns hafnaði mér. Ég hef verið svikinn. Það er vegna þess að Kristín lýgur til um veikindi mín. Velferðarsvið Akraness kaupsstaðar ætti að líta til þess að það fremur mannréttindabrot að ætla að þvinga mig á sambýli. Akranesbær gengur erinda konu sem er vafasöm á geði og hefur haldið því fram að ég sé misþroska.

 

Mín veikindi urðu ljós þegar ég kom fyrst á Klepp, að ég er með 4 mm. æxli á heiladingli. Ég fékk meðferð hjá Kristófer Þorleifssyni en æxlið truflar mig og var til vandræða þegar ég varð unglingur. Akraneskaupstaður hefur alla tíð höndlað mín mál illa. Í skóla var ég settur í sér stuðning, ég man að það var góð kona sem leiðbeindi mér, en ég þoldi ekki þá niðurlægingu að vera í sér deild skólans.

 

Ég glími við huglægt áreiti sem skemmir fyrir mér og á það til að æsa mig og tala hátt. Ég er með slæman ávana í samskiptum og loka á alla umræðu. Ég vil ekki þiggja þá meðferð sem mér er boðið.  Ég get ekki verið undirgefinn meðferðaraðilum mínum og þegið meðferð sem undirmálsmaður. Ég myndi vilja sjálfstæði og vera í samvinnu við minn lækni og hjúkrunaraðila, að hlustað yrði á mig og fundin yrði lausn þannig. Ég myndi vilja afturhvarf til þeirrar meðferðar sem ég var í hjá Kristófer Þorleifssyni.

 

Ég tel að það eigi sér stað einhver misskilningur milli mín og Velferðarsviðs Akranes kaupstaðar. Ég er sjálfmenntaður og hef verið skjólstæðingur félagsmálastofnunar frá barnsaldri. Ég var óskrifandi og gat ekki sett saman texta, ég er ánægður með að ég skuli hafa menntað mig sjálfur og að ég geti sett saman texta. Kristín hafði ekki fyrir því að koma mér í skóla, en mín skólaganga hefst ekki fyrr en árið 1985 á Akureyri, þegar ég var 9 ára . Allt frá því ég var í barnaskóla hef ég haft gaman af ljóðum og snemma langaði mig til að setja saman sögur, ég sinni mínum listrænum þörfum.

 

Það er galli á meðferð minni , hann er að Kristín er minn nánasti aðstandandi. Ég myndi vilja skoða þann möguleika að föðursystir mín, Sr. Sigríður Óladóttir sóknarprestur á Hólmavík, taki við sem minn aðstandi, að talað sé við hana frekar en Kristín, og hún höfð með í ráðum.

 

Ég hef hlotið dóm fyrir ofbeldi en hef enginn bein brotið, enginn þeirra sem ég hef verið dæmdur fyrir að beita ofbeldi hefur hlotið af því varanlegan skaða. Ég hef ekki verið dæmdur fyrir nauðgun og er ekki kynferðisbrotamaður og á því ekki að sæta eftirliti. Sjálfstæð búseta er eini kosturinn sem ég get sætt mig við. En Örorkubætur eru ekki nægar til framfærslu og ég fæ engan stuðning frá fjölskyldu.  Ég tel Þetta ekki framkomu við fullorðinn mann, það verður að finna aðra leið.

 

Örn Úlriksson

kt, 120376-3229.

Banki:0515-26.63229

Sími:699-4383.

netfang: ornulriks@hotmail.com

 

 

 

 

 

 


18 ára í síðumúlafangelsi

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3540975


Niðurstaða krufningar samtímans

Allt er hégómi og allt er heimska

Allt er sagt og allt er gert.

Allt er krufið til mergjar.

Samfélagið er hringleikahús.

Keisarinn er marghöfða.

Hann kýs sjálfan sig til valda

og margfaldar sig í huga fjöldans.


Hervæðing

m-16_1299083.jpg

 

 

 

Ísland! Vopnum börnin

gefum þeim M-16 og AK-47.

Skiptum þeim upp í lið

og látum þau berjast.

Á meðan kúrum við upp í sófa

með poppkorn og horfum á stríð í sjónvarpinu.

ak-47.jpg


Leiðin úr undirdjúpunum

Leiðin til að skilja þessi ljóð sem eru á youtube.com er að horfa á höfundinn í þessu samhengi: Að skáldið er inn á öryggisgeðdeild eftir að hafa afplánað 3 ára fangelsi á Litla Hrauni fyrir að hafa kveikt í bústað á Skafti Kleppsspítala þar sem hann bjó. Hann er ekki vistaður samkvæmt úrskurði dómara. Hann er sjálfmenntaður öryrki orðin þreyttur á sífelldri einangrun og vill varpaljósi á stöðu sína. Honum finnst hann svikinn. Við ætlun ekkert að fara nánar út í sögu hans nema að skáldið hlaut ekki þá menntun sem er skilyrt af lögum um skólaskyldu.

 

Ljóðið FÖSTUDAGSKVÖLD ber merki um kvenfyrirlitningu og skáldið er meðvitað um það enda vill það vekja upp viðbrögð og er sama um andúð.

Skáldið naut kvenhylli og var götustrákur í Reykjavík, komið úr afskekktri sveit í strandasýslu.

 

Höfundur er ekki menntaður listamaður en hann kallar þessi myndbönd gjörning, „gjörning sem er verri en sjálfsvíg“. Listamenn hafa sett sjálfsvíg á svið og hafa leitt áhorfendur um verksummerki. Youtube myndböndin eru sjálfsvíg og höfundurinn verður að lifa þau af.

 

Kunningjar skáldsins sem ekki gera sér grein fyrir þýðingu verksins eða hugarheim skáldsinns horfa til hans sem glataðs manns. Enda gjörningurinn úr takt við allt sem þekkt er og er án fordæmis. Þá má við það bæta að skáldinu finnst það engu hafa tapað, aðeins grætt þar sem myndbandið er með yfir 600 áhorf.

 

Þetta listaverk er tilraun til að ljúka ákveðnu lífsmunstri og til að upplýsa um stöðu skáldsins. Hér í lokin vill skáldið segja frá þeirri lífsreynslu að í eitt skipti var hann að njóta sín með fólki sem hann kann vel við en var tekin og svæfður af þeim sem hann treysti. Skáldið vill benda á að hann var svikinn af vinum sínum og svæfði heilt partí.


Meskalín


Mikki Mús

mikki mús

Þetta er böst


fatuorum papam

Æðsti  leiðtogi hinnar íslensku Lúþersku kirkju er biskup Íslands en páfinn hinsvegar þeirrar Kaþólsku.  Í fyrra bréfi Páls postula „Til Tímoteusar“ manna í 3. kafla er fjallað um leiðtoga kirkjunnar.  Þar fjallar hann um hagi biskups en þar segir í versi 1-3;  „það orð er satt, að sækist einhver eftir biskupsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk.  Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn og góður fræðari“.  Þennan kafla  myndi ég telja vera grunn alls kristilegst starfs og leiðarljós allra kristinna safnaða.  Það sem augljóslega er tekið eftir þegar maður les Tímotesur bréfin er að ekki einu orði er minnst á páfadóm og maður veltir fyrir sér hvaðan sá dómur er kominn. 

Enn fremur segir í 3. Kafla, 4. versi fyrra Tímoteusarbéfs;  „Hann á að vera maður, sem veitir góða forstöðu heimili sínu og heldur börnum sínum í hlýðni með allri siðprýði“.  Þegar rýnt er í texta þessa béfs sér maður að páfadómur er ekki nefndur þegar minnst er á leiðtoga kirkjunnar.  Og segja mætti að páfi sleppi auðveldlega frá skyldum sínum sem góður faðir og fjölskyldumaður.  Tekið er fram einkvæni og barneignir. 

Einnig segir í fimmta versi 3. kafla „Hvernig má sá, sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu, veita söfnuði Guðs umsjón?“  Nú eignast kaþólskir börn líkt og allir aðrir væri þá ekki eðlilegast að leiðtogar þeirra sýndu góða fyrirmynd og leiddu safnaðarbörn sín með góðu fordæmi?  Páll talar einnig um óeiningu anda og holdlegrar tilvistar í 8. kafla Rómverjabréfsins og það taka kaþólikkar alvarlega og banna prestum sínum, kardinálum og páfa að giftast og eignast börn. 
 
Í Genisis 1. kafla 27. - 28. versi segir „ Og Guð skapaði manninn í sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðsmynd, hann skapaði þau karl og konu“.( 28)  Og Guð blessaði þau, og Guð sagði við þau:  „Verið frjósöm, margfaldist og uppfyllið jörðina og gerið hana ykkur undirgefna og drottnið yfir fiskum sjávar og yfir fuglum loftsins og yfir öllum dýrum, sem hrærast á jörðinni.“   Þarna er fyrsta tilskipun Guðs til sinna barna en hún er að viðhalda kyninu og vera herra jarðar.  Það ætti því að vera hagur kristinna manna að eignast erfingja til að halda merki sínu á lofti. 

Í raun ætti að vera hægt að rekja páfadóm til Símon Péturs ef hann ætti að fá að geta staðist.  Þar sem Símon Pétur er talinn vera fyrsti páfinn.  En páfadómur tók sér hlutverk Krists á jörðu árið 606 þegar Fókas keisari 695-702 lýsti páfa æðstan og tók þá hlutdeild í guðdómnum með Kristi.  En skrefið var stigið til fulls 1870 þegar Píus páfi fékk samþykkta trúarsetningu þess efnis að páfinn sé óskeikull þegar hann talar í nafni embættis síns. En Það er aðeins einn meðalgangari milli Guðs og manna og það er Kristur.  Því dreg ég umboð hans sem meðalgangari milli Guðs og manna í efa. 
 
Á miðöldum fékk páfi viðurnefnið  „fatuorum papam“ vegna „Festum asinorum“ (hátíð asnanna) sem haldin var í Frakklandi.  Hátíð þessi var haldin til minningar um flótta Maríu guðsmóður til Egyptalands.  Tíðkaðist þá að flokkur asna gengju fremstir til kirkju.  Messuhaldið var frekar frábrugðið því sem íslendingar eiga við að venjast, því í lok hvers þáttar rumdu safnaðarbörninn hver með sínum mætti eins og asnar og í stað þess að segja við lok messunar „Ite missa est“ rumdi prestur eins og hann væri asni tvisvar sinnum og svaraði söfnuðurinn til baka hátt og snjallt að sama hætti.  Tók margar aldir að afnema sið þennan sem mér  finnst jafn asnalegur og skírlífi kaþólskra munnka, presta, kardinála og páfa.
 


Einkavæðing

Þessi grein er skrifuð fyrir mörgum árum.

 

Árin1220-1267 voru ekki góð fyrir landið okkar Ísland, því þá töpuðum við sjálfstæði okkar vegna svika landráðamanna í hendur Noregskonungs sem þá var Haraldur hárfagri. Stóð það fötlunarástand yfir í 656 ár. Fyrir þau ár var við lýði hér höfðingjaveldi (aristocracy). Skilgreining hinna gömlu heimspekinga er lifðu í Grikklandi hinu forna, Plató d. 347 f.Kr. og Aristóteles d. 322 f.Kr. á höfðingjaveldi er eftirfarandi: Aristocracy (höfðingjaveldi) er það stjórnform, þar sem fámennur hópur bestu manna fer með ríkisvaldið í þágu allrar þjóðarinnar. En þessir grísku heimspekingar hafa einnig látið frá sér þau skilaboð að mikil hætta væri samfara stjórnskipan þessari þróun yfir í klíkuveldi (oligarchy). Klíkuveldi skapast er fámennur hópur manna (eignamanna) stjórnar í engra annarra þágu nema þeirra sjálfra.

Aristóteles segir: Klíkuveldi gætir hagsmuna hinna ríku. Er ég að tala um landnámsárin eða er ég að tala um nútímann? Líklega á þetta við um alla tíma. Sagan er að spila sjálfa sig aftur og aftur, það eina sem breytist er að það er ekki verið að nema land heldur er verið að nema viðskiptasambönd, fyrirtæki og fólk.

Smá punktur. 

Í Rússlandi í valdatíð Borisar Jeltsín reið yfir einkavæðingarbylgja sem endaði á þann veg að fámennur hópur manna hvarf á brott með milljarða dollara sem tilheyrðu Rússneskum ríkissjóði. Boris Jeltsín og hans menn gáfu beinlínis ríkisfyrirtæki í nafni einkavæðingar vandamönnum og skoðanabræðrum. 

-Mín tilfinning- 


Það er sem ég sé staddur í Rússlandi, en er ég horfi í kringum mig sé ég fögur fjöll, sem í sumarblíðu skarta guðdómlega fallegri flauelsbreiðu sem náttúran hefur breitt yfir þau, önnur eru nakin, grýtt og gróf eins og hin eina sanna fjallkona. Sólin skín, næstum allan sólarhringinn. Fólk sem ég hitti talar og ég skil það, en það hjalar innihalds- og merkingarlaust þvaður sem staðfestir að ég sé hvergi annarstaðar staddur en á Íslandi. 

Einkavæðingin ríður nú yfir íslenskt efnahagslíf. Síðast Síminn, er rekinn var með 750 milljón króna hagnaði árið 2000. En eigið fé Símans var samtals 28.125.344.000 kr. árið 2000. Og er það fé nú komið í hendur einkaaðila.

Stefnt er á, að það verði Landsvirkjun næst ríkisfyrirtækja, sem plokka skuli frá landinu í þágu hagsmuna fárra manna, sem reyndar skilaði engum hagnaði fyrir árið 2000 því að rekstrarhalli var upp á 1.366.119.190 kr. En árið 1999 dekkar þann halla upp því þá var hagnaður upp á 1.924.430.462 kr. En eigið fé og skuldir þess fyrirtækis samanlagt er 111.596.453.567 kr. árið 2000. Við erum brjáluð ef við gefum þetta frá okkur líka og látum Davíð umbreytast yfir í Boris.
Með því erum við að senda Ísland aftur á það svið er það var ekki fjárráða. En Ísland fékk fjárræði frá Dönum 1874, er Alþingi fékk lögjafarvald í hendur frá konungi Dana.

Í Morgunblaðinu þriðjudaginn 22. maí 2000 talar Pétur H. Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins um fyrirbæri er hann nefnir fé án hirðis. Ekki eru allir sem átta sig á hvað þar er átt við, því skal ég útlista það sem best ég get: Hann meinar fé ríkisfyrirtækja sem bundið er hinum íslenska ríkissjóði. Nota á fé þetta í menningar- og umhverfismál, þannig að það skili sér til baka í gegnum hagkerfið aftur inn í ríkissjóð. þannig er það á hreyfingu, sem nauðsynlegt er fyrir sjóðinn og er hollt fyrir land og þjóð. Fé þetta nær að vaxa í hagkerfinu en það eru takmörk fyrir því hver vöxtur þess er, vegna þess hve það er lítið. Vilji þeirra Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna er stýra þessu landi er að setja „hirði“ yfir það og þá sína „hirði“.
 
Fari fé þetta frá ríkissjóði er ríkið komið ovaní holu og hvað eiga menn að gera þegar þeir eru að moka sig ovaní holu? Nú þeir eiga að hætta að moka og það er betra að hætta þegar enn er hægt að komast upp. Orðrétt stóð og stendur skifað í Mogganum: Hvatti Pétur til þess að bretta upp ermarnar í einkavæðingunni og selja næst Landsvirkjun. Það þarf engan snilling til að sjá, að þegar búið er að einkavæða helstu fyrirtæki landsins munu tekjur þess rýrna heldur betur er til framtíðar er litið, og aðeins er um augnabliks tekjuaukningu að ræða, er sýnt verður fram á hana. Því er einkavæðingin svipuð því að pissa í skóna sína, sem sé skammgóður vermir, og hvað gerist þegar vökvinn í skónum kólnar? Svar: Krónan fellur, sjálfstæðið farið, ESB og evran upp.
Við rennum saman við stórfljótið, þar sem lækjarspræna hefur ekkert að segja og enginn mun huga að bæjarlæknum, því að þegar stjórfljót hefur fundið sér farveg á hlaðinu. gleymist sá gamli góði fljótt. 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband